Kosið verður um sameiningu Garðabæjar og Álftaness samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs og er gert ráð fyrir að kosningarnar fari fram 20. október í haust. Verði sameining samþykkt í báðum sveitarfélögum er stefnt að því að hún taki gildi í ársbyrjun 2013.
Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag en með sameiningu hefst sérstakt ferli fram að sveitarstjórnarkosningum árið 2014. Ekki er gert ráð fyrir að tvær bæjarstjórnir starfi í sameinuðu sveitarfélagi og hefur verið rætt að bæjarstjórn Garðabæjar fari með stjórn sveitarfélagsins, en sveitarstjórn Álftaness verði ráðgefandi eða nokkurs konar hverfisstjórn.
Þá kemur fram að eitt af verkefnum í sameinuðu sveitarfélagi fram að næstu bæjarstjórnarkosningum er að ákveða hvernig staðið verður að fjárhagsáætlun og hversu hátt útsvarið verður. Garðabær hefur verið með lægsta útsvar á höfuðborgarsvæðinu, en Álftanes það hæsta síðustu ár.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir að útsvar á tekjur Garðbæinga verði ekki hækkað og honum finnist eðlilegast að sama útsvarsprósenta verði í sameinuðu sveitarfélagi. Það yrði þá 13,66% eins og er í Garðabæ eftir að sveitarfélögin tóku yfir málefni fatlaðra. Á Álftanesi er útsvarið nú 14,48% og auk þess er 0,43 prósentustiga álag á útsvar í samræmi við samning sem sveitarfélagið gerði við Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga.