Garðabær, í samstarfi við Markaði Íslandsbanka, hélt mánudaginn 31. ágúst útboð á skuldabréfum í stækkuðum skuldabréfaflokki sveitarfélagsins, GARD 13 1. Kemur þetta fram í tilkynningu til kauphallarinnar.

Alls bárust tilboð að nafnverði 860 milljóna króna með ávöxtunarkröfu á bilinu 2,79% til 3,10%. Á fundi bæjarráðs sem haldinn var í dag var samþykkt að taka tilboðum að nafnverði 430 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 2,90%. Útistandandi voru fyrir að nafnverði 1.767 milljónir og verður heildarstærð flokksins því nú að nafnverði 2.197 milljónir króna.

Gert er ráð fyrir að nýútgefin skuldabréf verði tekin til viðskipta í Kauphöll Íslands mánudaginn 7. september nk.