Garðar Hannes Friðjónsson forstjóri Eikar fasteignafélags seldi í dag öll bréf sín í félaginu til einkahlutafélagsins Burðarbiti ehf., félags sem er að fullu í hans eigu.

Fjöldi hluta sem hann færði til var 7.410.461 á genginu 7,86 krónur hver hlutur. Eign Garðars í félaginu nemur því 58 milljónum íslenskra króna.

Í viðtali við Viðskiptablaðið segir Garðar söluna aðeins hafa verið tilfærslu á eigin eignum, samkvæmt ráðleggingum endurskoðanda.