Niðurstöður rannsóknar á upptökum elds sem upp kom í loftinntaksrými í Hellisheiðarvirkjun í vetur liggja nú fyrir að því er segir í fréttatilkynningu frá Orku náttúrunnar. Líklegast er að kviknað hafi í út frá eldfimu jarðhitagasi sem lekið hafði úr gaslögn og neisti, mögulega vegna stöðurafmagns, komið brunanum af stað.

Þessi niðurstaða Mannvirkjastofnunar og lögreglu er í samræmi við mat starfsfólks Orku náttúrunnar (ON) fljótlega eftir brunann og hefur fyrirtækið þegar gripið til viðeigandi ráðstafana til að slíkt endurtaki sig ekki.

Þær fela meðal annars í sér að gaslagnir sem um ræðir hafa verið aftengdar og verið er að fara yfir hönnun og frágang þeirra hluta virkjana fyrirtækisins þar sem aðstæður eru svipaðar. Þá mun ON upplýsa önnur jarðhitafyrirtæki um þessar niðurstöður til að fleiri geti lært af.

Sjálfsábyrgð fyrir 100 milljónir króna

Eldurinn kviknaði laust fyrir hádegi 12. janúar síðastliðinn eins og Viðskiptablaðið sagði frá á sínum tíma.

Engan sakaði og sameiginlegar æfingar starfsfólks ON, Brunavarna Árnessýslu og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins skiluðu sér í slökkvistarfinu. Vel gekk að ráða niðurlögum eldsins og brunahólfun og vel frágengnar brunaþéttingar takmörkuðu útbreiðslu. Áhrif á orkuvinnsluna voru lítil.

Einkum varð tjón á hluta þaks stöðvarhússins og skipta þarf um hluta burðarvirkis þess. ON er tryggt fyrir tjóninu en sjálfsábyrgð tryggingarinnar nemur sem svarar til 100 milljóna króna. Viðgerðum er ekki að fullu lokið og tjónið ekki verið gert upp.