Gauti Hallsson, orkutæknifræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Raf ehf. á Akureyri. Gauti hefur um árabil verið eigandi og framkvæmdastjóri Dexta orkutæknilausna ehf.

Gauti gegndi áður starfi framkvæmdastjóra hjá Kælismiðjunni Frost ehf. á árunum 2002-2005 og var verkefnastjóri og síðan framkvæmdastjóri hjá Becromal Iceland ehf. á árunum 2008-2011

Ráðning Gauta kemur í framhaldi á kaupum Dexta á hlut í Raf ehf. ásamt nýgerðum samstarfssamningi á milli félaganna.