Skráningarnúmerið á nýrri Airbus A330-300 breiðþotu WOW air sem kemur til landsins í í byrjun mars mun bera skráningarnúmerið TF-GAY. Síðar á árinu munu tvær breiðþotur til viðbótar bætast í flota WOW, en þær munu heita TF-LUV og TF-WOW.

Síðastliðið vor fengu tvær Airbus A321 vélar nöfnin TF-MOM og TF-DAD og tvær voru nefndar TF-SIS og TF-BRO. Í febrúar bættust tvær vélar í flotann, en þær fengu nöfnin TF-SON og TF-KID.

Tvær nýjar Airbus A321 vélar eru væntanlegar til landsins en þær hafa ekki fengið nafn. Næsta vor mun flugfloti félagsins telja ellefu vélar og er meðalaldur þeirra 2,5 ár.

WOW er MOM á hvolfi og segir félagið að þannig hafi hugmyndin af skráninganúmerum flugvélaflota WOW air komið til, en þau tengjast öll nútíma fjölskyldu og vill WOW air reyna að halda áfram að skrá vélar sínar á þann hátt.