Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,2% í dag í 12,1 milljarða króna viðskiptum. Þá hefur GBI lækkað um 1,7% á einni viku og 6,6% á einum mánuði.

Þetta kemur fram í daglegu skuldabréfayfirliti GAMMA.

Verðtryggður hluti vísitölunnar, GAMMAi, hækkaði um 0,2% í dag en velta með verðtryggð bréf nam tæpum 3,8 milljörðum í dag. GAMMAi hefur þó lækkað um 1,5% á einni viku og 6,8% á einum mánuði.

Óverðtryggður hluti vísitölunnar, GAMMAxi, hækkaði einnig um 0,2% í dag en velta með óverðtryggð bréf nam um 8,3 milljörðum króna. Þá hefur GAMMAxi, lækkað um 2,3% á einni viku og 6,1% á einum mánuði.