Heildarvelta með skuldabréf nam um 9 milljörðum króna í dag. Þar af nam velta með verðtryggð íbúðabréf um 1,7 milljörðum króna en velta með óverðtryggð ríkisbréf um 7,3 milljörðum króna.

Skuldabréfavísitala Gamma, GBI lækkaði um 0,2% og stendur nú í 172,5 stigum. Þá hefur GBI hækkað um 0,2% í vikunni en um 2,2% s.l. mánuð.

Þetta kemur fram í upplýsingum frá GAM Management (GAMMA) en félagið birtir skuldabréfavísitölu sína daglega.