Heildarvelta með skuldabréf nam rúmlega 11,1 milljarði króna í dag. Þar af nam velta með verðtryggð íbúðabréf um 3,4 milljörðum króna en velta með óverðtryggð ríkisbréf um 7,7 milljörðum króna.

Skuldabréfavísitala Gamma, GBI stóð í stað en hún stendur nú í 172,2 stigum. Þá hefur GBI hækkað um 0,4% í vikunni en um 2,3& s.l. mánuð.

Þetta kemur fram í upplýsingum frá GAM Management (GAMMA) en félagið birtir skuldabréfavísitölu sína daglega.