Heildarvelta með skuldabréf nam tæpum 7,3 milljörðum króna í dag. Þar af nam velta með verðtryggð íbúðabréf um 700 milljónum króna en velta með óverðtryggð ríkisbréf um 6,6 milljörðum króna.

Skuldabréfavísitala Gamma, GBI hækkaði um 0,1% og stendur nú í 170,6 stigum. Þá hefur GBI hækkað um 0,3% s.l. viku en um 2,2% s.l. mánuð.

Þetta kemur fram í upplýsingum frá GAM Management (GAMMA) en félagið birtir skuldabréfavísitölu sína daglega.