General Electric hefur leitað til Warren Buffett um aðkomu að fyrirtækinu.

Fjárfestingarfyrirtækið Buffett, Berkshire Hathaway, hefur ákveðið að fjárfesta fyrir þrjá milljarða Bandaríkjadala í GE en samkomulag er um að sú upphæð geti orðið á endanum sex milljarðar dala.

Samhliða þessu hafa forráðamenn GE tilkynnt um að þeir hyggist selja nýtt hlutafé í fyrirtækinu fyrir allt að 12 milljörðum dala.