Fimm af sjö meðlimum bankaráðs Landsbankans hafa sent frá sér tilkynningu þess efnis að þau gefa ekki kost á sér til endurkjörs í ráðið á aðalfundi bankans 14. apríl næstkomandi. Þau eru Tryggvi Pálsson, Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, Jón Sigurðsson, Kristján Davíðsson og Jóhann Hjartarson. Aðrir meðlimir bankaráðsins eru þau Danielle Pamela Neben og Helga Björk Eiríksdóttir.

Í yfirlýsingu frá bankaráðsmönnunum fimm kemur fram að ástæðan fyrir því að þau gefa ekki kost á sér á ný sé vegna þess að þau fallast ekki á þá skoðun Bankasýslunnar að Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans auk formanns og varaformanns bankaráðs eigi að víkja úr starfi. Þau telji að farsælast sé að Steinþór starfi áfram sem bankastjóri og telja Bankasýsluna ganga of langt með tillögu sinni. Hér fyrir neðan er hægt að lesa yfirlýsinu bankaráðsmannana fimm í heild sinni:

„Við undirrituð bankaráðsmenn tilkynnum hér með að við gefum ekki kost á okkur til endurkjörs í bankaráð Landsbankans. Við gerum ráð fyrir að skila af okkur störfum á aðalfundi bankans 14. apríl nk. með hefðbundnum hætti.

Svonefnt Borgunarmál hefur verið bankanum erfitt. Kjarni málsins eins og hann horfir við okkur er í raun einfaldur. Hagsmunir bankans voru í fyrirrúmi, eins og bankaráð mat þá besta á sínum tíma. Engar aðrar hvatir lágu þar að baki. Ásakanir um annað eru meiðandi og við höfnum þeim alfarið.

Bankasýslan sem fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum hefur nú sent bankaráðinu bréf þar sem að engu eru höfð málefnaleg rök bankans fyrir því hvernig undirbúningi og framkvæmd á sölu á hlutum í Borgun var háttað. Þrátt fyrir að formaður bankaráðs hafi á aðalfundi bankans í mars 2015 sagt að bankinn hefði betur selt hlutinn í Borgun í opnu ferli og ljóst sé að fleira hefði mátt betur fara, teljum við engu að síður að það sé langur vegur frá því að í bréfinu sé gætt jafnvægis og hlutlægni. Í raun veitist Bankasýslan harkalega að bankanum af óbilgirni sem er síst til þess að fallið að auka traust.

Í bréfi Bankasýslunnar er kallað eftir aðgerðaáætlun bankaráðs sem skuli liggja fyrir innan tveggja vikna til þess að endurvekja traust á bankanum. Er nú unnið að henni innan bankans eins og komið hefur fram. Látið er í veðri vaka í bréfinu sjálfu og í viðtölum við stjórnarformann Bankasýslunnar í fjölmiðlum, að þar muni bankaráðið hafa frjálsar hendur til þess að vinna að málum eftir bestu getu. Áður en bréfið var afhent bankaráði boðaði stjórnarformaður Bankasýslunnar formann bankaráðs til fundar að forstjóra stofnunarinnar viðstöddum, með þau skilaboð að það eina sem dugi til sé að bankastjóranum verði sagt upp störfum auk þess sem formaður og varaformaður víki. Sú afstaða stjórnar Bankasýslunnar fékkst síðar staðfest. Þarna gengur Bankasýslan skrefi of langt. Það er hlutverk bankaráðs og Fjármálaeftirlitsins að meta hæfi bankastjórans. Við munum ekki taka þátt í skollaleik sem hvorki samrýmist meginreglum félagaréttar né góðum stjórnarháttum.

Steinþór Pálsson er stefnufastur og öflugur stjórnandi; hreinn og beinn. Hann er leiðtogi bankans og hefur staðið sig með afbrigðum vel. Við teljum farsælast að hann stjórni bankanum áfram til góðra verka.

Á þeim árum sem við höfum gegnt störfum í bankaráðinu hefur Landsbankinn bætt fjárhagslega stöðu sína með markvissu starfi sem hefur skilað traustari banka og veglegum arði til ríkissjóðs og annarra hluthafa. Við erum stolt af því að eiga þar hlut að máli.

Tryggvi Pálsson

Eva Sóley Guðbjörnsdóttir

Jón Sigurðsson

Kristján Davíðsson

Jóhann Hjartarson“