Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Digon Games hyggst gefa út fótboltaleikinn Kickoff CM í ágúst og verður það fyrsti íslenski fótboltatölvuleikurinn. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þar segir að í leiknum eignist spilarar sitt eigið félag og etji kappi í rauntíma við vini og kunningja og aðra notendur leiksins.

Guðni Rúnar Gíslason, leikjahönnuður Digon Games, segir ýmsar nýjungar boðaðar í leiknum. „Þarna erum við að skapa einn heim þar sem þú etur kappi við vini og kunningja. Þú eignast knattspyrnufélag sem þú munt stjórna og taka þátt í byggja upp og nota til að keppa gegn vinum og öðrum andstæðingum í leiknum“, segir Guðni.

Einn helsti kostur leiksins að mati Guðna er að notendur geta spilað leiki þegar þeim hentar en þurfa ekki að fylgja fyrirfram ákveðinni dagskrá. „Það gerir leikinn virkari fyrir vikið og leiðir því líka saman þá sem hafa tíma til að sökkva sér ofan í leikinn og þá sem eiga færri lausar stundir í tölvuleikjaspilun.“

Guðni segir jafnframt að Kickoff sé töluvert aðgengilegri en aðrir fótboltaleikir. „Öll hönnun og viðmót hafa verið útfærð með það að markmiði að allir geti skilið það sem fyrir augu ber. Við höfum sett mikla vinnu í að leikurinn sé aðgengilegur fyrir notendur,“ segir Guðni.

Samkvæmt Guðna er útgáfan í ágúst ætluð fyrir notendur hér á landi. Í kjölfarið er stefnt á markaðssetningu erlendis.