Samgöngustofa hefur gefið út ákvörðun sem gildur um flug allra dróna (fjarstýrðra loftfara) óháð þyngd þeirra. Í henni er fjallað um leyfilegar hámarkshæðir og flug þeirra í nágrenni flugvalla. Þar kemur meðal annars fram:

„Samkvæmt ákvörðuninni er óheimilt að fljúga dróna hærra en í 130 metra hæð án sérstaks leyfis frá Samgöngustofu. Lögregla og aðrir viðbragðsaðilar eru undanþegnir þessari hæðartakmörkun, svo og þeir sem stunda rannsóknaflug í vísindaskyni.“

Einnig er tekið fram að: „Ef fljúga á dróna nálægt flugvelli þarf til þess leyfi rekstaraðila vallarins. Slíkt leyfi þarf til flugs innan 2 km frá svæðamörkum allra áætlunarflugvalla. Fyrir aðra flugvelli gildir áfram regla um 1,5 km frá svæðamörkum.“

Samgöngustofa segir jafnframt að þrátt fyrir þessa takmörkun er heimilt að fljúga drónum án sérstaks leyfis að því gefnu að þeir fari ekki hærra en hæstu mannvirki í næsta nágrenni við flugferil drónans. Samgöngustofa tekur þó fram að alltaf skal þó sýna ítrustu varkárni og hafa beri í huga að drónar skulu ávallt víkja fyrir annarri flugumferð. Einnig er tekið fram að alltaf þarf samþykki frá rekstraraðila flugfallar ef fljúga á dróna innan flugvallasvæðisins.

Í tilkynningu frá Samgöngustofu er tekið fram að: „Veruleg þörf hefur verið á skilgreindum reglum um drónaflug til að tryggja flugöryggi. Því hefur Samgöngustofa gefið þessa ákvörðun út og verður hún í gildi þangað til reglugerð um notkun og starfrækslu dróna hefur fengið samþykki ráðherra. Slík reglugerð hefur verið í vinnslu og er nú til umsagnar hjá innaríkisráðuneytinu .
Til viðbótar vill Samgöngustofa minna á tilmæli sín til þeirra sem nota dróna. Í þeim koma fram ábendingar um ábyrgð og aðgæslu þeirra sem fljúga drónum svo notkun þeirra skapi ekki hættu fyrir fólk eða dýr.“