Íslandsbanki hefur stækkað EUR 225 skuldabréfaflokk sinn um 75 milljónir evra, eða 10,5 milljarða króna. Heildarstærð útgáfunnar er nú 300 milljónir evra.

Skuldabréfin voru seld til fjárfesta á meginlandi Evrópu, en Deutsche Bank og JP Morgan sáu um sölu bréfanna. Skuldabréfin eru á gjalddaga árið 2018 og bera 2,875% fasta vexti. Verð bréfanna jafngildir 247 punkta álagi yfir fljótandi vexti í evrum en stefnt er að skráningu skuldabréfanna í Kauphöllinni á Írlandi.

Útgáfan er gefin út undir Global Medium Term Notes (GMTN) útgáfuramma bankans að upphæð 750 milljónir dollara.