Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætis- og dómsmálaráðherra, Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, eru allir staddir erlendis nú um stundir. Þetta gerir það að verkum að Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra, tekur við ráðherraembættum Sigmundar og Gunnars, en auk þess er hann handhafi forsetavalds í fjarveru Ólafs Ragnars. Morgunblaðið greinir frá málinu.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, er einnig staddur erlendis, en Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, gegnir störfum hans á meðan.