Fyrsti ársreikningur Geimskipafélags Íslands, sem réttu nafni heitir CCP GI, dótturfélags CCP liggur fyrir. Félagið er nýstofnað og því eðlilega ekki mikið sem gerðist á árinu 2011.
Áhugavert er hins vegar að sjá hve eigið fé félagsins er hátt. Nemur það 751,1 milljón króna og kemur frá móðurfélaginu.
Tilgangur CCP GI er að taka þátt í gjaldeyrisútboðum Seðlabankans.