Geir H. Haarde forsætisráðherra fundar nú með Guy Verhofstadt forsætisráðherra Belgíu í Brussel. Geir fundar síðar í dag með ýmsum yfirmönnum Evrópusambandsins.

Geir er í tveggja daga ferð til Lúxemborgar og Brussel.

Eftir fundinn með forsætisráðherra Belgíu fundar hann meðal annars með Javier Solana, fulltrúa Evrópusambandsins á sviði sameiginlegu utanríkis- og öryggismálastefnunnar, Benita Ferrero-Waldner, framkvæmdastjóra Evrópusambandsins á sviði utanríkismála, og Olli Rehn, framkvæmdastjóra stækkunarmála.