Geir H. Haarde forsætisráðherra mun ávarpa þjóðina kl. 16 í dag.

Sýnt verður frá ávarpinu á Ríkisútvarpinu og Stöð 2.

Ekki liggur fyrir hvert tilefni ávarpsins er en ljóst má þykja að umfjöllunarefnið verður núverandi efnahagsástand.

Boðað hefur verið til þingfundar strax í kjölfarið.