Eftir að Geir H. Haarde, forsætisráðherra hafði lokið ræðu sinni á fundi Íslensk-Ameríska verslunarráðsins svaraði hann fyrirspurnum úr sal.

Þá sagði Geir, í svari við spurningu um evruskráningu Straums Burðarás að hann gerði ráð fyrir að búið yrði að fá svör við því fyrir næsta reikningsár hvernig farið yrði með skráningu hlutafjár í erlendri mynt í Kauphöllinni.