Geir H. Haarde forsætisráðherra var heiðursgestur við lokunarathöfn verðbréfamarkaðar NASDAQ í gær.

Í tengslum við heimsókn sína til Sameinuðu þjóðanna hefur Geir átt fundi með fulltrúum úr viðskiptalífi og háskólum í New York, ásamt því að leiða fund smærri ríkja innan SÞ um nýjar umhverfisógnir.

Í dag ávarpar hann svo fund um framkvæmd þúsaldarmarkmiða SÞ.