„Ég er iðulega beðinn um að tala á ráðstefnum erlendis og tel ekki að það sé sérlega fréttnæmt,“ segir Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Eins og fram kom fyrr í dag þá verður hann aðalræðumaður á ráðstefnu Investment Europe Pan European Fund Selector Summit sem haldin verður í Hamborg í Þýskalandi í október. Ekki kemur fram um hvað Geir ætlar að ræða.

Geir vill ekki tjá sig frekar um málið og segir í skeyti við fyrirspurn Viðskiptablaðsins engu við það að bæta sem áður hefur komið fram um ráðstefnuna.

Á vefsíðu Investment Europe er ferill Geirs tíundaður og sérstaklega tekið fram að hann hafi verið sýknaður í Landsdómsmálinu. Þá er bent á að hann sé fyrsti þjóðarleiðtogi í heimi sem hafi verið ákærður fyrir að hafa ekki gert nóg til að koma í veg fyrir fjármálakreppuna sem skall á árið 2008.