Bæði Geir H. Haarde, forsætisráðherra og Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra hvöttu almenning til að halda ró sinni þrátt fyrir það ástand sem nú ríkir á fjármálamörkuðum.

„Við munum sigla í gegnum þetta saman,“ sagði Björgvin G. í ávarpi sínu.

Þá hvatti Geir til þess að almenningur taki ekki stórar upphæðir út af bankareikningum sínum þar sem það gerði alla vinnu um endurskipulagningu bankanna erfiðara um vik.