Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði aðspurður á blaðamannafundi rétt í þessu að ekki væri hægt að segja til um það hvenær krónan myndi styrkjast á ný. Það myndi þó gerast þegar við værum komin í gegnum brimskaflinn.

Geir sagði að flestir væri þó sammála um að krónan væri alltof veik miðað við jafnvægisgengi hennar.

Hann sagði að aðgerðir dagsins væru lítið gleðiefni en staðan hefði þó ekki boðið upp á annað.