Geir H. Haarde, forsætisráðherra, heldur í dag til New York þar sem hann mun á morgun taka þátt í Íslandsdegi í Kauphöllinni í New York (New York Stock Exchange), segir í fréttatilkynningu.

Ráðherra mun flytja ávarp og eiga fund með fulltrúum Kauphallarinnar og aðilum úr íslensku og bandarísku viðskiptalífi ásamt því sem hann mun hringja út viðskiptin í Kauphöllinni síðdegis.