Geir H. Haarde sagði í ávarpi sínu á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins að honum fyndist stundum eins og fjallað væri um efnahagsmál af nokkurri léttúð og jafnvel skilningsleysi hér heima.

„Þar á ég meðal annars við framgöngu ákveðinna stjórnmálamanna og fjölmiðla og staðhæfingar um að ekkert sé verið að gera, eins og það heitir. Stundum er talað eins og stjórnvöld ráði yfir töfralausnum sem ekki séu til annars staðar þegar vandinn er aftur á móti sá að alþjóðlegir vindar skekja okkar eigið hagkerfi án þess að við höfum mikið um það að segja,“ sagði Geir.

„Sannleikurinn er sá að á vegum ríkisstjórnarinnar, en þó sérstaklega Seðlabankans, hefur að undanförnu verið unnið baki brotnu að því að greiða úr þeim vanda sem hinar alþjóðlegu aðstæður hafa skapað,“ sagði Geir.

Hann sagði slíkar aðgerðir vera þess eðlis að undirbúningur þeirra tekur langan tíma og ekki er hægt að flytja af þeim fréttir frá degi til dags.

Þá sagði hann mikla opinber umræða getur verið óheppilega, skapað óraun-hæfar væntingar og þar með jafnvel haft neikvæð áhrif.

Geir sagði neikvætt umtal víða erlendis um íslenskt efnahagslíf og íslenskt bankakerfi, samdráttur í útlánum banka og sparisjóða, mikil lækkun á gengi íslensku krón¬unnar og verðhækkun á margvíslegri vöru og þjónustu hefur valdið óróa hér innanlands.

Hann sagði það skiljanlegt því hér landi hafi vaxið úr grasi heil kynslóð at-hafna¬manna sem aldrei hefur þurft að horfast í augu við erfiðleika af þessu tagi.

„Ég trúi því hins vegar að hér sé um tímabundið ástand að ræða því að fjölmargir þættir í íslenskum þjóðarbúskap eru afar jákvæðir hvort sem litið er til skemmri eða lengri tíma,“ sagði Geir.