Utanríkisráðherra hefur skipað Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætis- og utanríkisráðherra, og Árna Þór Sigurðsson, alþingismann og fyrrverandi formann utanríkismálanefndar sendiherra í utanríkisþjónustunni.

Geir og Árni munu taka sæti sendiherra frá og með 1. janúar 2015. Þetta kemur fram á vef utanríkisráðuneytisins.

Ekki liggur fyrir að svo stöddu í hvaða ríkjum þeir munu gegna sendiherrastöðu.