Geir H. Haarde, forsætisráðherra, mun eiga fund með Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, í Lundúnum nk. fimmtudag.

Gert er ráð fyrir að þeir ræði alþjóðleg efnahagsmál, öryggismál og orkumál.

Forsætisráðherra mun einnig funda með David Cameron, leiðtoga breska Íhaldsflokksins á morgun, þriðjudag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.