Geir H. Haarde, forsætisráðherra mun ganga á fund forseta Íslands á Bessastöðum kl. 16 í dag og biðjast lausnar fyrir ríkisstjórnina.

Að loknum fundi forseta og forsætisráðherra mun forseti Íslands ræða við fréttamenn, segir í tilkynningu frá skrifstofu forsetans.