Geir Jón Þórisson, lögreglumaður og fyrrv. aðstoðaryfirlögregluþjónn, hefur ákveðið að gefa kost á sér sem annar varaformaður Sjálfstæðisflokksins.

Geir Jón
Geir Jón


Þetta kemur fram í tilkynningu frá Geir Jóni. Þar segir að í þann tíma sem hann hafi starfað sem lögreglumaður hafi hann valið að halda sig frá öllu stjórnmálasamstarfi. Nú þegar störfum á þeim vettvangi sé að ljúka, finni hann mikla þörf og löngun til að vinna að þeim stóru og brýnu verkefnum samfélagsins sem liggi á sviði stjórnmálanna.

„Ástæða þess að ég gef kost á mér í þetta stóra verkefni er einlægur áhugi minn og vilji til að láta gott af mér leiða,“ segir í tilkynningunni.

„Reynsla mín af fyrri störfum og djúp þörf til að koma þjóðþrifamálum í framkvæmd hvetur mig einnig til að stíga þetta stóra skref. Hvatning víða úr samfélaginu er mér sömuleiðis kærkomin og fyrir henni ber mikla virðingu. Með framboði mínu til annars varaformanns Sjálfstæðisflokksins vil ég undirstrika vilja minn og áhuga á því að efla og styrkja Sjálfstæðisflokkinn, flokk allra stétta, til að ná þeim styrk sem þarf til að leiða þjóðina út úr því erfiða ástandi sem hún býr við í dag.“

Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins verður haldinn þann 17. mars nk. Þar verður í fyrsta sinn kosinn 2. varaformaður Sjálfstæðisflokksins samkvæmt nýjum skipulagsreglum flokksins sem samþykktar voru á landsfundi fyrir áramót.