Geir Jón Þórisson tók í dag sæti á Alþingi í fjarveru Ásmundar Friðrikssonar þingmanns. Geir Jón var á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2013.

Geir Jón er þekktastur fyrir störf sín hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en hann var yfirlögregluþjónn um árabil. Geir Jón starfaði einnig hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum.