Íslenski fáninn blakti víða við hún í miðborg Aþenu þegar opinber heimsókn Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, til Grikklands hófst í dag.

Geir fundaði með Kostas Karamanlis, forsætisráðherra Grikklands, og ræddu þeir m.a. ítarlega um tvíhliða samskipti ríkjanna og samstarf þeirra á alþjóðavettvangi.

Einnig yfirfóru þeir leiðir til að auka gagnkvæm viðskipti og fjárfestingar, m.a. með nýjum samningi um afnám tvísköttunar.

Þakkaði Grikkjum stuðning við framboðið

Þá fjölluðu þeir um eflingu samstarfs við nýtingu jarðhita með miðlun íslenskrar þekkingar og tækni.

Ráðherrarnir fjölluðu um þróun mála á vestanverðum Balkanskaga og helstu viðfangsefni framundan á vegum Evrópusambandsins og NATO. Einnig stöðuna á Kýpur og í Mið-Austurlöndum. Þá skiptust þeir á skoðunum um ástandið í Georgíu.

Loks fóru þeir yfir stöðu efnahagsmála í ríkjunum tveimur og alþjóðlegar horfur á því sviði. Forsætisráðherra þakkaði grískum stjórnvöldum yfirlýstan stuðning við framboð Íslands til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

Geir og fylgdarlið skoðaði síðan nýtt fornminjasafn við Akrópólis-hæð, sem senn verður opnað almenningi. Í kvöld verður efnt til móttöku fyrir gesti úr stjórnmálum, stjórnsýslu og atvinnulífi í Grikklandi á heimili kjörræðismanns Íslands.

Forsætisráðherra ávarpar á morgun ráðstefnu á vegum grískra stjórnvalda þar sem íslenskir aðilar kynna nýtingu Íslendinga á jarðhita til raforkuframleiðslu.