General Motors hefur gripið til þess ráðs að bjóða vaxtalaus lán til 72 mánaða þegar keyptir eru pallbílar fyrirtækisins. Þetta kemur fram í frétt Reuters.

Tilboðið byrjar á morgun og stendur út mánuðinn. Sala General Motors hefur minnkað um 17% frá því í fyrra. Sala á stórum bílum minnkaði um 40% í maí.

General Motors hyggst hækka verð á 2009 árgerðum sínum um meira en 3% til að velta hækkandi hrávöruverði út í verðlagið.