General Motors (GM) þarf að innkalla 322.409 bíla að gerðinni Chevrolet Impala vegna galla í bílbelti í framsæti. Bílarnir eru af árgerð 2009 og 2010.

Engin slys hafa verið tilkynnt vegna gallans, að því er segir í frétt Reuters fréttastofu. GM biður eigendur bílanna að koma með þá í skoðun síðar í mánuðinum. Ef galli reynist vera í bílbelti verður það lagað eigendum að kostnaðarlausu.