Gengi hlutabréfa Eimskips féll um 4,18% í Kauphöllinni í dag. Velta með hlutabréfin nam 160 milljónum króna og var þetta mesta veltan á markaðnum.

Á sama tíma lækkaði gengi bréfa VÍS um 1,32%, Haga um 0,87% og Regins um 0,82%. Gengi hlutabréfa Marel hækkaði hins vegar um 0,75% og Icelandair Group um 0,49%

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,71% og endaði hún í 1.157 stigum. Heildarvelta með hlutabréf nam rúmum 424 milljónum króna.