Gengi hlutabréfa Eimskips hækkaði um 0,66% í 83 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Þetta var mesta gengishækkun dagsins af Úrvalsvísitölufélögunum á hlutabréfamarkaði. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Haga-samstæðunnar um 0,46%.

Á móti lækkaði gengi bréfa fasteignafélagsins Regins um 1%, Icelandair Group fór niður um 0,68% og bréf VÍS um 0,58%.

Mestu viðskipti dagsins voru með hlutabréf Icelandair Group eða upp á 191 milljón króna. Heildarvelta með hlutabréf nam 377 milljónum króna og voru viðskiptin 69 talsins.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,02% og endaði hún í 1.132 stigum í lok dags.