Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq á Íslandi lækkaði um 0,26% í rúmlega 1,5 milljarða króna heildarveltu á markaði og fór hún niður í 1.727,79 stig. Heildarveltan í markaðsvísitölu Gamma nam rúmlega 3 milljörðum króna og lækkaði um 0,17% og stendur nú í 165,467 stigum.

Þar af námu skuldabréfaviðskiptin rúmlega 1,7 milljörðum króna og lækkaði skuldabréfavísitala Gamma um 0,028% upp í 335,270 stig.

Mest hækkun var á gengi bréfa Icelandair, eða um 1,84% í 224 milljóna króna viðskiptum og fæst nú hvert bréf félagsins á 11,62 krónur. Næst mest hækkaði gengi bréfa HB Granda um 1,47% í engum viðskiptum og er gengi bréfanna nú 34,4 krónur.

Mest lækkun var svo á gengi bréfa Eimskips, eða um 2,58% í 112 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfa í Högum lækkaði næst mest, eða um 2,55% í 11 milljóna króna viðskiptum og stendur það nú í 45,8 krónum.