Gengi hlutabréfa fasteignafélagsins Regins hækkaði um 1,11% í tæplega 224 milljóna króna veltu í Kauphöllinni í dag. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Eimskips um 0,67% og Marel um 0,38%. Gengi bréfa Eimskips og Regins hefur ekki verið jafn hátt og nú.

Hins vegar lækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,13% og Haga-samstæðunnar um 0,12%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,20% og endaði hún í 997,93 stigum.