Gengi hlutabréfa Eimskips hækkaði um 2,96% í 211 milljóna króna veltu í Kauphöllinni í dag. Þetta var mesta hækkun dagsins. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,92%, Haga um 0,67% og Marel um 0,37%.

Á hinn bóginn féll gengi hlutabréfa fasteignafélagsins Regins um 2,16%, VÍS um 0,97% og TM um 0,56%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,55% og endaði hún í 1.128 stigum. Heildarvelta í Kauphöllinni nam rúmum 633 milljónum króna.