Gengi hlutabréfa Haga hækkaði mest í Kauphöllinni í dag, um 1,7%. Næst á eftir fylgdi gengi bréfa Marel, sem hækkaði um 0,69%. Þá hækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,68% og stoðtækjafyrirtækisins Össurar um 0,49%. Gengi bréfa beggja færeysku félaganna sem skráð eru í Kauphöllina stóð hins vegar í stað.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,24% og endaði hún í 1.023 stigum. Vísitalan fór í methæðir í síðustu viku.