Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,66% í viðskiptum dagsins í dag. Gengi bréfa Haga hækkaði um 1,05%, Icelandair um 0,96% og TM um 0,71%. Ekkert félag lækkaði í verði í dag. Velta á hlutabréfamarkaði nam 468,6 milljónum króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,32% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,43% og sá óverðtryggði um 0,04%. Velta í viðskiptum með bréf í vísitölunni nam tæpum 1,5 milljarði króna.