Gengi hlutabréfa Haga lækkaði um 0,88% í fremur lítilli veltu með hlutabréfin í Kauphöllinni í dag. Hún nam 21 milljón króna. Þetta var mesta gengislækkun dagsins. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa N1 um 0,81%, Vodafone um 0,46%, Icelandair Group um 0,28% og HB Granda um 0,17%.

Þá hækkaði gengi bréfa fasteignafélagsins Regins um 1,62%, TM um 0,81%, VÍS um 0,61%, Eimskips um 0,45% og Sjóvár um 0,41%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,21% og endaði hún í 1.150 stigum. Heildarvelta með hlutabréf nam rétt rúmum 816 milljónum króna. Mest var veltan með hlutabréf Eimskips eða upp á 218 milljónir króna.