Gengi hlutabréfa Marel hækkaði um 0,77% í 40 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,38%.

Á móti lækkaði gengi Haga-samstæðunnar um 1,16%, gengi bréfa fasteignafélagsins Regins fór niður um 0,65% og Eimskips um 0,45%. Gengi hlutabréfa allra þriggja félaga hefur verið í hæstu hæðum upp á síðkastið.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,16% og endaði hún í 987,8 stigum.