Gengi hlutabréfa Haga hækkaði um 1,37% í 100 milljóna króna veltu í Kauphöllinni í dag. Þetta var mesta gengishækkun dagsins. á sama tíma hækkaði gengi bréfa HB Granda um 0,99%, Icelandair Group um 0,30% og Eimskips um 0,21%.

Á móti lækkaði gengi bréfa TM um 1,65%, Össurar um 1,43%, VÍS um 1,21%, Regins um 0,91%, Vodafone um 0,63%, N1 um 0,57%, Marel um 0,47% og Sjóvár um 0,16%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,07% og endaði hún í 1.142 stigum. Heildarvelta með hlutabréf í Kauphöllinni nam tæplega 1,1 milljarði króna. Mest voru viðskiptin með hlutabréf Icelandair Group eða upp á 380 milljónir króna.