Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 1,12% í viðskiptum dagsins og endaði í 1710,24 stigum. Heildarviðskipti á hlutabréfamarkaði námu 1,1 milljarði.

Gengi hlutabréfa Icelandair lækkuðu mest, en þau lækkuðu um 2,4% í 323 milljón króna viðskiptum. Einnig lækkaði gengi bréfa Marel um 1,21% en það í 79 milljón viðskiptum. Gengi bréfa í HB Granda lækkaði einnig um 0,98% í 24 milljón króna viðskiptum.

Gengi hlutabréfa í TM hækkaði þó og voru því þau einu sem hækkuðu þennan viðskiptadag, en hækkunin nam 1,21% í 75 milljón króna viðskiptum.