Gengi bréfa í TM hefur lækkað um 2,28% í viðskiptum í Kauphöll Íslands það sem af er degi. Gengi bréfa er nú í 27,9 krónum á hlut.

TM birti uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung í gær en samkvæmt því hagnaðist félagið um 700 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi sem var 178 milljónum krónum meira en á sama tíma í fyrra.

Fram kemur í uppgjörinu að iðgjöld drógust saman um 4,5% á milli ára, en aukinn hagnaður er einkum vegna fjárfestingastarfsemi.