Gengi hlutabréfa í VÍS hækkaði um 1,71% í 246 milljóna króna viðskiptum í dag. Velta með bréf félagsins voru gríðarlega mikil samanborið við önnur fyrirtæki í Kauphöllinni.

Næst á eftir kom Icelandair en velta með bréf þess félags nam 127 milljónum króna. Velta með bréf Marel nam 89 milljónum króna en gengi bréfa lækkaði um 0,59%. Marel skilar uppgjöri síðar í dag.

Össur skilaði uppgjöri fyrr í dag og hækkaði gengi bréfa um 4,94%. Þó ber að hafa í huga að einungis 9 milljóna króna viðskipti liggja að baki þeirri hækkun.