Gengi hlutabréfa í VÍS hækkaði um 2,89% í 309 milljóna króna viðskiptum í Kauphöll Íslands í dag. Gengi bréfa í Icelandair lækkaði um 1,12% í 208 milljóna króna viðskiptum.

Þá hækkaði gengi bréfa í N1 um 0,61% í 172 milljóna króna viðskiptum og gengi bréfa í TM hækkaði um 0,85% í 159 milljóna króna viðskiptum.

Minni velta var með bréf í öðrum félögum.