Gengi hlutabréfa í Vodafone hækkaði mest allra í Kauphöllinni í dag, eða um 3,07% í 30 milljóna króna viðskiptum. Talsverð hækkun varð hjá öðrum félögum en gengi bréfa í Eimskip hækkaði um 1,74%, TM um 1,33% og Haga um 1,16%. Þá hækkaði gengi bréfa í Icelandair um 0,89%.

Engin félög á aðalmarkaði Kauphallarinnar lækkuðu í virði í dag.

Úrvalsvísitalan styrktist um 0,61% og endaði í 1.223,30 stigum.