Gengi bréfa í Vodafone lækkaði um 3,5% í dag. Að baki þeirri lækkun eru þó lítil viðskipti eða 62 milljónir króna. Gengi bréfa í TM lækkaði um 2,28% í 158 milljóna króna viðskiptum.

TM birti árshlutauppgjör í gær en samkvæmt því var hagnaður á fyrsta ársfjórðungi 700 milljónir króna, sem var 178 milljónum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Hagnaðurinn skýrist aðallega af fjárfestingastarfsemi en iðgjöld drógust saman á milli ára.